Nýr þvottaróbot

Nýi þvottaróbotinn hjá Sjótækni tilbúinn til notkunar, starfsmaður Sjótækni Davíð Rúnar Benjamínsson, býr sig undir að hífa róbotinn yfir í kvína til að þvo nótina þar
Nýi þvottaróbotinn hjá Sjótækni tilbúinn til notkunar, starfsmaður Sjótækni Davíð Rúnar Benjamínsson, býr sig undir að hífa róbotinn yfir í kvína til að þvo nótina þar

Sjótækni hefur tekið í notkun nýjan þvottaróbot til að þrífa nætur í fiskeldiskvíum. Róbotinn er af gerðinni Stealth Cleaner frá fyrirtækinu Ocain í Noregi. Róbotinn er beltalaus og þrífur næturnar með lágþrýstingi sem þýðir að notkun hans krefst minni olíunotkunar. Kaup Sjótækni á þessu tæki er einn liður í að framfylgja umhverfisstefnu fyrirtækisins sem kveður á um að reynt skuli að draga úr orkunotkun eins og kostur er til að minnka umhverfisáhrif fyrirtækisins. Sjótækni er með umhverfisvottun samkvæmt alþjóðlegum umhverfisstaðli ISO 14001 og fékk þá vottun endurnýjaða í vor ásamt því að standast vottun samkvæmt alþjóðlegum öryggisstaðli ISO 45001.

Sjótækni stenst alþjóðlegar vottanir

Við hjá Sjótækni ehf á Tálknafirði erum afskaplega stolt að hafa staðist öryggisvottun samkvæmt alþjóðlegum staðli ISO 45001 og endurnýjun á umhverfisstaðlinum ISO 14001. Vottunarstofan DNV-GL í Noregi hefur tekið út starfsemi Sjótækni og hefur staðfest að fyrirtækið starfar samkvæmt öryggisstaðlinum ISO 45001 og umhverfisstaðlinum ISO 14001. Líklega er Sjótækni fyrsta útgerðar- og verktakafyrirtæki landsins sem fær báðar þessar vottanir á starfsemi sína. Þessi staðfesting skiptir fyrirtækið miklu máli og er jafnframt trygging viðskiptavina okkar á að við séum að sinna okkar störfum sem best verður á kosið.

Sjótækni er hafsækinn verktaki sem sinnir uppsetningu, eftirliti, viðhaldi og þjónustu við ýmiskonar mannvirki í sjó og vatni fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög ásamt því að reka öfluga köfunarþjónustu. Framkvæmdir tengjast meðal annars neðansjávarlögnum, mannvirkjum í sjó og vatni, fiskeldi, skipaþjónustu, virkjunum og stóriðju. Fyrirtækið gerir út báta, vinnuskip, pramma og bílaflota og mikið af sérhæfðum tækjum og búnaði svo sem kafbáta og mælingatæki af fullkomnustu gerð.

Aðalstarfsstöð fyrirtækisins er á Tálknafirði og hjá Sjótækni starfa 15 starfsmenn.

Fyrsta verkefni nýja mælingabátsins hjá Sjótækni

Starfsmenn Sjótækni ehf eru þessa dagana við Reykjavíkurhöfn að ljúka prófunum á nýjum mælingabáti Sjótækni. Fyrstu prófanir hafa komið vel út og starfsmenn eru búnir að ná góðum tökum á stjórn bátsins. Starfsmenn eru mjög ánægðir með bátinn og hlakka til að takast á við fyrstu verkefnin sem bíða bátsins.

Sjá nánar á innsíðu: MÆLINGAR / RANNSÓKNIR